Norður-Kórea hættir kjarnorkutilraunum

Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur fyrirskipað að öllum kjarnorkuvopnatilraunum …
Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur fyrirskipað að öllum kjarnorkuvopnatilraunum í ríkinu verði hætt. AFP

Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur fyrirskipað að öllum kjarnorkurtilraunum verði hætt. Tilgangi tilraunanna, að tryggja öryggi og stöðugleika ríkisins, hafi verið náð og því sé ekki þörf á frekari tilraunum. 

Yonhap fréttastofan í Suður-Kóreu hefur eftir yfirvöldum í Norður-Kóreu að öllum eldflauga- og kjarnorkuvopnatilraunum verði hætt og að tilraunasetrum í norðurhluta landsins verði lokað.

Ákvörðunin verður að teljast tímamótaskref í milliríkjasamskiptum Norður- og Suður-Kóreu. Kim Jong Un mun koma til fundar við Moon Jae-in, leiðtoga Suður-Kóreu, í næstu viku á hlutlausa svæðinu sem aðskilur Norður- og Suður-Kóreu. 

Búist er við að kjarnorkuvopn og notkun þeirra verði aðalumræðuefni tilvonandi leiðtogafundar Kim Jong Un og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Stjórn­völd í Banda­ríkj­un­um hafa átt í milliliðalaus­um viðræðum við stjórn­völd í Norður-Kór­eu um fund ríkj­anna. Trump sagði í vikunni að fund­ur­inn muni lík­lega eiga sér stað í júní og ef til vill fyrr.

Frétt mbl.is: Leiðtogafundur Trumps og Jong-un nálgast

Aukin harka færðist í kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu í fyrra þegar stjórnvöld gerðu sex prófanir á langdrægum eldflaugum sem sköpuðu mikla spennu milli stjórnvalda í Norður-Kóreu og Bandaríkjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert