Trump: Góðar fréttir fyrir heimsbyggðina

Donald Trump hlakkar til leiðtogafundarins með Kim Jong Un í …
Donald Trump hlakkar til leiðtogafundarins með Kim Jong Un í ljósi nýjustu fregna um ákvöðrun hins síðarnefnda um að hætta öllum kjarnorkutilraunum. AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er ánægður með ákvörðun Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, um að hætta öllum prófunum á kjarnorkuvopnum eða eldflaugum.

Frétt mbl.is: Norður-Kórea hættir kjarnorkutilraunum

Trump segir á Twitter-síðu sinni að fréttirnar séu afar góðar fyrir Norður-Kóreu og heimsbyggðina alla og segir hann ákvörðunina sýna miklar framfarir. 

Þá segist hann hlakka til leiðtogafundarins með Kim Jong Un. Mike Pom­peo, for­stjóri banda­rísku leyniþjón­ust­unn­ar CIA, hitti Kim Jong Un á leyni­leg­um fundi í síðustu viku. Fund­ur­inn, sem fór fram í Norður-Kór­eu, gekk vel fyr­ir sig að sögn Trumps og komið var á góðu sam­bandi. Áætlað er að fundurinn fari fram í maí eða júní. 

Frétt mbl.is: Staðfesti fundi Pompeos og Kims

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert