Hataði kynlífsatriðin

Sofia Helin í hlutverki Sögu Norén.
Sofia Helin í hlutverki Sögu Norén.

„Hún býr innra með mér, þannig að ég sé ekki hvernig ég á að geta saknað hennar. Hún er ég. Eftir átta ár með henni finn ég að hennar hugsunarháttur hefur haft áhrif á heilastarfsemina í mér, en á jákvæðan hátt.“

Þetta segir sænska leikkonan Sofia Helin í samtali við breska blaðið The Telegraph, spurð hvort hún eigi eftir að sakna hinnar kostulegu persónu Sögu Norén sem hún lék með tilþrifum í dansk/sænsku framhaldsþáttunum Brúnni sem runnu sitt skeið á enda fyrr á þessu ári.

Eftir átta ár viðurkennir Helin að hún sé úrvinda, andlega og líkamlega. Hlutverkið hafi reynt verulega á hana. „Mér líður eins og ég sé að koma í mark í maraþonhlaupi,“ segir Helin og líkir hlutverkinu við steinsteypugervi. „Maður þarf að halda öllu í sér og vera mjög einbeittur. Þetta er eins og að ganga með þung lóð á sér alla daga.“

Eins undarlega og það hljómar núna þá voru framleiðendur þáttanna ekki sannfærðir um að Helin væri rétta manneskjan í hlutverkið þegar Brúin var fyrst lögð, ef svo má að orði komast, árið 2010. Óttuðust að hún væri ekki nógu þekkt í Danmörku en Brúin var samstarfsverkefni danska og sænska sjónvarpsins. Þeir sjá ekki eftir því nú enda bar Helin þáttinn uppi; svo rammt kvað raunar að þeim burði að danski leikarinn Kim Bodnia, sem lék hitt aðalhlutverkið í fyrstu tveimur seríunum, sagði sig frá verkefninu, áður en hann drukknaði í kjölsoginu.

Í úttekt The Telegraph kemur fram að Helin átti sjálf heilmikinn þátt í því að móta persónu Sögu. „Allt sem hún les, það lærir hún, en þegar kemur að mannlegum samskiptum er hún algjörlega úti á túni. Meira höfðum við eiginlega ekki að segja um Sögu Norén í upphafi,“ útskýrir Hans Rosenfeldt, handritshöfundur og einn þeirra sem skópu Brúna.

Lagðist í rannsóknir

Fyrsta manneskjan sem gerði því skóna að Saga væri með Asperger-heilkennið var Charlotte Sieling, sem leikstýrði fyrstu fjórum þáttunum. Það varð til þess að Helin lagðist í rannsóknarvinnu; las bækur, ræddi við samtök um heilkennið og gerði tilraunir með kauðaleg orðaskipti. Það var líka Sieling sem skóp útlitið sem Saga hélt út allar seríurnar; ómáluð, í leðurbuxum og slitnum frakka. „Sögu er slétt sama um útlitið,“ segir Helin.

Brúin fór til þess að gera rólega af stað. Það var ekki fyrr en sýningarrétturinn var seldur út fyrir Norðurlöndin árið 2012 að hjólin fóru að snúast fyrir alvöru. Þátturinn hefur nú verið sýndur í 188 löndum og endurgerður á hinum ýmsu landamærum; svo sem Bandaríkjanna og Mexíkó, Bretlands og Frakklands og nú síðast Rússlands og Eistlands. Allir vildu Sögu kveðið hafa.

Eftir aðra seríuna gerðu framleiðendur könnun meðal áhorfenda og kom þrennt í ljós, að sögn eins framleiðendanna, Bo Ehrhardts. „Þeir vildu Sögu, meiri Sögu og enn meiri Sögu. Þeir vildu kynnast henni betur, sjá hana sýna meiri tilfinningar og vera ekki svona mikið vélmenni. Þá vildu þeir að allt færi vel hjá Sögu. Við létum áhorfendur hafa tvennt af þessu þrennu.“

Raunar munaði mjóu að Helin fylgdi fordæmi Bodnias og segði skilið við Brúna eftir þriðju seríuna. Þá hefði gerð þáttanna líklega verið sjálfhætt. „Ég sá ekki hvernig við gætum haldið áfram að þróa persónuna en síðan hitti ég Hans [Rosenfeldt] og þegar við byrjuðum að spinna sá ég skyndilega leið og vissi að ég yrði að kýla á þetta,“ segir hún við The Telegraph.

„Þetta hverfist um sjálfið,“ heldur hún áfram, „uppáhaldsviðfangsefni mitt í heiminum – hver er ég? – þannig að ég stóðst ekki mátið. Saga hefur gengið lengi fyrir ótta, reiði, hryggð og ofsa. Hún nemur ekki staðar til að velta fyrir sér hvers vegna hún er að gera hlutina.“

Það gerist loks þegar Saga er ranglega sett bak við lás og slá í lokaseríunni. „Fangavistin þvingar hana til að endurmeta allt sitt líf. Hún getur ekki sinnt lögreglustörfum lengur og hver er hún þá? Hver er ég ef allt er tekið frá mér?“ segir Helin sem lét sjálf loka sig inni í sólarhring til að búa sig undir hlutverkið.

Spurð hvað henni hafi þótt erfiðast við það að leika Sögu svarar Helin: „Ég hata kynlífsatriði. Sem ég held að sé mjög heilbrigð afstaða. Það segir sitthvað um mig og mín heilindi. Þetta er bara eitthvað sem maður verður að láta sig hafa til að segja söguna.“

Og þvílík Saga.

Nánar er fjallað um Brúna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert