Lögreglan í Nashville hefur handtekið mann sem skaut fjóra til bana á veitingastaðnum Waffle House í borginni aðfaranótt sunnudags.
Frétt mbl.is: Nakta árásarmannsins leitað
Um 160 lögreglumenn tóku þátt í leitinni sem stóð yfir í rúman sólarhring. Morðinginn, Travis Reinking, fannst í skóglendi í nágrenni við borgina. Hann var í rifnum bol og með skrámur á líkamanum þegar hann fannst.
BREAKING: Travis Reinking apprehended moments ago in a wooded area near Old Hickory Blvd & Hobson Pk. pic.twitter.com/00ukga37s6
— Metro Nashville PD (@MNPDNashville) April 23, 2018
Reinking kom inn á veitingastaðinn vopnaður riffli og skammbyssu og nakinn að öðru leyti en því að klæðast jakka. Viðskiptavinur náði skotvopninu af manninum, sem síðan flúði á tveimur jafnfljótum.
Frétt mbl.is: Flúði inn í skóg á brókinni
Yfirvöld í Tennessee hafa staðfest að Taurean Sanderlin, 29 ára, Joe Perez, 20 ára, og Deebony Groves, 21 árs, hafi látist á vettvangi en fjórða fórnarlambið, Akilah Dasilva, 23 ára, hafi látist á sjúkrahúsi. Tveir særðust í árásinni.