Ökumaðurinn ákærður fyrir morð

Vic Minassian, faðir hins grunaaða, Alek Minassian, yfirgefur réttarsalinn eftri …
Vic Minassian, faðir hins grunaaða, Alek Minassian, yfirgefur réttarsalinn eftri að ákæra á hendur syni hans var gefin út. AFP

Kanadamaðurinn Alek Minassian, sem ók á vegfarendur í miðborg Toronto í gær, hefur verið ákærður fyrir morð.

Minassian kom fyrir dóm í dag þar sem gefin var út ákæra á hendur honum fyrir manndráp af fyrstu gráðu. Hann er einnig ákærður fyrir margar tilraunir til manndráps. 10 létust og 15 slösuðust í árásinni í gær.

Minassi­an er í haldi lög­reglu og var yfirheyrður fyrr í dag. Hann hefur ekki komið við sögu lögreglu og er ekki að finna í gagnasöfnum hennar. Ekki er vitað til að hann tengist hryðjuverka- eða öfgasamtökum af nokkru tagi.

Örygg­is­málaráðherr­a Kandada, Ralph Goodale, segir að þjóðaröryggi sé ekki ógnað en að ljóst sé að verknaðurinn var framinn af yfirlögðu ráði.

Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada segir árásina vera „glóru­lausa“ en að íbúar landsins megi ekki lifa í ótta og óvissu hvern einasta dag.

Frétt mbl.is: Trudeau: Óttinn má ekki sigra

Hlédrægur háskólanemi

Minassian býr ásamt föður sínum í úthverfi í Richmond Hill í Toronto og stundaði nám við Seneca háskólann. Samnemendur hans lýsa honum hlédrægum og ögn vandræðalegum í samskiptum. 

Hann hélt sig yfirleitt til hlés í skólanum. Einn samnemandi hans segir í samtali við fréttamann CBS sjónvarpsstöðina að hegðun hans væri oftast „frekar furðuleg“ en að hann hafi aldrei talið að hann væri ofbeldishneigður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert