Krefjast lausnargjalds í bitcoin

Mannræningjarnir vilja fá greitt í bitcoin.
Mannræningjarnir vilja fá greitt í bitcoin. AFP

Gengi sem rændi suðurafrískum unglingi af leikvelli um helgina vill fá lausnarféð greitt í gjaldmiðlinum bitcoin. Upphæðin sem gengið krefst jafnast á við 123 þúsund dollara eða um 13 milljónir króna. 

Hinum þrettán ára gamla pilti var rænt í Mpumalanga-héraði í austurhluta landsins er hann var að leik ásamt vinum sínum. Mannræningjarnir drógu hann upp í bíl og óku með hann á brott.

„Við erum að rannsaka mannrán sem varð í bænum Witbank á sunnudag,“ segir Leonard Hlathi, talsmaður lögreglunnar, í samtali við AFP-fréttastofuna.

„Það var gerð krafa um að foreldrarnir greiddu [lausnargjald] í gjaldmiðlinum bitcoin, segir hann en verst annars frekari fregna af málinu.

Fjölmiðlar í Suður-Afríku segja að miði með kröfunni um lausnargjaldið hafi verið skilinn eftir á vettvangi. „Við krefjumst þess að lausnargjald, 15 bitcoins, verði greitt in á neðangreint bitcoin-fang til að tryggja öruggt frelsi barnsins ykkar – ekki umsemjanlegt,“ segja suðurafrískir fjölmiðlar að staðið hafi á miðanum.

Talið er að um fyrsta mannrán í Suður-Afríku sé að ræða þar sem krafist er lausnargjalds í rafmynt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert