Lögðu fram tillögu um vantraust

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar.
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar. AFP

Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á Spáni hefur lagt fram tillögu um vantraust á forsætisráðherra landsins, Mariano Rajoy. Sósíalistaflokkurinn lagði tillöguna fram eftir að Íhaldsflokkurinn Partido Pop­ul­ar (PP) var fundinn sekur um að græða á spillingu.

Tillagan var lögð fram í neðri deild spænska þingsins, samkvæmt því sem talsmaður Sósíalistaflokksins sagði við AFP-fréttastofuna.

176 af 350 þingmönnum í neðri deild þingsins þurfa að samþykkja tillöguna. Samkvæmt erlendum miðlum er verkefnið talið erfitt vegna þess hve sundurleitur hópur stjórnarandstaðan er.

Hæstiréttur Spánar dæmdi í gær 29 manns til samtals 351 árs fangelsisvistar vegna spillingarmálsins sem nefnt hefur verið Gurtel-málið. 

Kaup­sýslumaður­inn Francisco Cor­rea er sakaður um að hafa verið forsprakki spill­ing­ar­nets­ins og að hafa greitt mútu­greiðslur til að fyr­ir­tæki hans fengju samn­inga við hið op­in­bera víða um Spán. Carrera var dæmdur í 51 árs fangelsi.

Er þetta í fyrsta skipti sem ríkjandi stjórnarflokkur á Spáni hefur verið fundinn sekur fyrir dómi. Rajoy, sem er 63 ára og hef­ur verið formaður íhalds­flokk­sins Partido Pop­ul­ar frá ár­inu 2004, er ekki sakaður um neitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert