Sex konur myrtar í Mexíkó

Yfir 25 þúsund voru drepnir í Mexíkó í fyrra.
Yfir 25 þúsund voru drepnir í Mexíkó í fyrra. AFP

Lík sex kvenna, sem hafði verið rænt á föstudaginn, fundust í gær í norðurhluta Mexíkó að sögn lögreglu.

Konunum var rænt af vopnuðum mönnum í matvælaverksmiðju í Tamaulipas-ríki. Lík þeirra fundust við þjóðveg í sama ríki. Unnið er að rannsókn málsins að sögn lögreglu.

Í fyrra voru 25.339 einstaklingar myrtir í Mexíkó í tengslum átök tengd skipulögðum glæpasamtökum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert