Íhaldsmaðurinn Ivan Duque fór með sigur af hólmi í forsetakosningunum í Kólumbíu með rúm 54 prósent atkvæða.
Andstæðingur hans, vinstrimaðurinn Gustavo Petro, var með 41,7% þegar búið var að telja tæp 97% atkvæða.
Duque er viðskiptamaður og nýliði í pólitík. Í kosningabaráttu sinni lagði hann áherslu á að endurrita samning frá 2016 sem heimilar FARC-skæruliðum að sitja á þingi.
Right-wing Duque wins Colombian presidency, beating leftist Petro https://t.co/hNKVShGO1q
— Reuters Top News (@Reuters) June 17, 2018