Indland hefur ákveðið að bætast í hóp þeirra ríkja sem setja tolla á vörur frá Bandaríkjunum sem svar við innflutningstollum sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sett á stál og ál. Samkvæmt indversku sjónvarpsstöðinni NDTV hafa indversk stjórnvöld sent Alþjóðaviðskiptastofnuninni tilkynningu þess efnis.
Meðal annars verður 50% tollur settur á mótorhjól með 800cc slagrými eða meira, 20% á möndlur, 20% á valhnetur og 25% á epli, en innflutningstollar Indlands munu í heild ná til 30 vörutegunda.
Indversk stjórnvöld segja aðgerðirnar varnarviðbrögð við verndartollum Bandaríkjanna á ál og stál. Áætlað er að tollarnir munu skila indverska ríkinu um 238 milljónir bandaríkjadala eða 26 milljörðum króna, á meðan áætlanir gera ráð fyrir að tollar Bandaríkjanna á ál- og stálvörur frá Indlandi skili bandaríska ríkinu um 241 milljónir bandaríkjadala eða rétt rúmlega 26 milljörðum króna.
Fleiri aðilar hafa lýst því yfir undanfarið að þeir hyggjast innheimta tolla af vörum frá Bandaríkjunum, en áður hafði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lýst áformum sínum þess efnis. Í síðustu viku fréttist að öll aðildarríki sambandsins styðji áform framkvæmdastjórnarinnar.
Síðastliðinn föstudag tilkynnti Trump að hann hefði sett 25% toll á kínverskar vörur að andvirði 50 milljarða bandaríkjadollara eða tæplega 5,5 þúsund milljarða króna.
Kínverjar lýstu því yfir að þeir hyggjast svara í sömu mynt með því að setja innflutningstolla á 659 bandarískar vörur að andvirði sambærilegri upphæð, 50 milljarða bandaríkjadollara.