Charlottesville í fyrra Washington nú

Frá Charlottesville.
Frá Charlottesville. AFP

Skipuleggjendur göngunnar „Unite the Right" í Charlottesville í fyrra hafa fengið heimild til þess að standa fyrir göngu í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington DC.

Umsókn Jason Kessler um að fá að halda göngu fyrir borgararéttindum hvítra, „white civil rights rally“ hefur verið samþykkt og verður gangan haldin helgina 11.-12. ágúst.

Samkvæmt umsókn Kessler má búast við því að um 400 manns taki þátt í göngunni. Atburðurinn í Washington DC er skipulagður þegar ár er liðið frá sambærilegri samkomu í Charlottesville, Virginíu.

Hóp­ur fólks kom til að mót­mæla boðskap kynþátta­hat­ar­anna í Charlottesville í fyrra. Í fyrstu kom til orðahnipp­inga. Svo var farið að stugga við fólki. Að lok­um brut­ust út átök. Þegar allt var á suðupunkti bakkaði einn úr hópi kynþátta­hat­ar­anna, James Alex Fields, bíl sín­um inn í mann­fjöld­ann og á mót­mæl­end­urna með þeim af­leiðing­um að 19 slösuðust og ein kona, Heather Heyer að nafni, lést.

Óskað var eftir heimild til þess að halda sambærilega göngu í Charlottesville í ár en þeirri beiðni var hafnað á grundvelli almannaöryggis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert