Pussy Riot segist hafa truflað úrslitaleikinn

Gæslumenn og lögreglumenn þurftu að hafa sig alla við er …
Gæslumenn og lögreglumenn þurftu að hafa sig alla við er fjórar liðskonur Pussy Riot hlupu inn á völlinn í síðari hálfleik úrslitaleiksins í Moskvu. AFP

Rússneska andófshópurinn Pussy Riot stóð fyrir mótmælum á úrslitaleik HM í Rússlandi í dag, er fjórar liðskonur sveitarinnar hlupu inn á völlinn á meðan leikurinn var í fullum gangi, íklæddar lögreglubúningum.

Hópurinn hefur frá stofnun verið gagnrýnin á stjórnvöld í Rússlandi og hafa liðsmenn hans verið fangelsaðir fyrir gjörninga þar sem stjórn Vladimírs Pútín Rússlandsforseta er gagnrýnd.

Pussy Riot birti yfirlýsingu á Twitter-síðu sinni skömmu eftir að konurnar hlupu inn á völlinn, þar sem settar voru fram sex kröfur á hendur rússneskum stjórnvöldum.

Hópurinn hljóp inn á völlinn í gervi „himneska lögreglumannsins“, sem var sköpunarverk rússneska skáldsins Dmitry Prigov.

„Himneski lögreglumaðurinn“, samkvæmt samkvæmt sagnaheimi Prigovs, á í tvíhliða samskiptum við sjálfan guð á himnum, á meðan „lögreglumaðurinn á jörðinni“ býr sig undir að ráðast að stjórnmálaviðburðum, sem eru stjórnvöldum ekki að skapi, samkvæmt yfirlýsingu Pussy Riot.

Án þess að við köfum of djúpt í samanburðinn á lögreglumönnunum tveimur er annars vegar um að ræða góðar löggur og hins vegar slæmar löggur.

Kröfur Pussy Riot eru, samkvæmt tístinu:

  1. Að öllum pólítískum föngum verði sleppt.
  2. Að fólk fari ekki í fangelsi fyrir „like“ á samfélagsmiðlum.
  3. Að ólöglegum handtökum á stjórnmálaviðburðum verði hætt.
  4. Að samkeppni í stjórnmálum verði leyfð í Rússlandi.
  5. Að stjórnvöld hætti að ásaka fólk um glæpi og halda þeim í fangelsi fyrir engar sakir.
  6. Að „lögreglumaðurinn á jörðinni“ breytist í „himneska lögreglumanninn“.



Mikill sprettur var á mótmælendum í dag.
Mikill sprettur var á mótmælendum í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert