Ekki of seint að „bjarga Brexit“

Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands. AFP

Boris Johnson, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands, sagði í dag að það væri ekki of seint að „bjarga Brexit“. Hann gagnrýndi einnig Theresu May forsætisráðherra fyrir hálfkák í málinu.

Johnson, sem sagði af sér sem ráðherra fyrir tíu dögum, sagði að nýjustu áætlanir May gerðu það að verkum að Bretar væru í óþarfa óvissu.

Breska ríkisstjórnin náði samkomulagi í byrjun mánaðarins um hvernig hún sér fyr­ir sér framtíðarsam­band sitt við Evr­ópu­sam­bandið eft­ir Brex­it. Þar kom meðal annars fram að stjórn­in leit­ast eft­ir því að gera fríversl­un­ar­samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið á sviði iðnaðar- og land­búnaðarfram­leiðslu. Stjórn­in styður auk þess sam­eig­in­legt tolla­svæði.

Í kjölfar þessa samkomulags sögðu Johnson og David Davis, ráðherra útgöngumála í bresku ríkisstjórninni, af sér.

„Það er ekki of seint að bjarga Brexit. Við verðum að taka þá ákvörðun að hafa trú á þessu landi vegna þess að aðdáendur okkar um allan heim bíða þess að við tökum aftur stjórnina,“ sagði Johnson meðal annars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert