Sakaðir um að nauðga tíu ára dreng

Lögreglan mun fara fram á gæsluvarðhald yfir yngri piltinum.
Lögreglan mun fara fram á gæsluvarðhald yfir yngri piltinum. Af vef lögreglunnar á Austur-Jótlandi

Tveir piltar, fimmtán og sautján ára, eru í haldi lögreglunnar á Austur-Jótlandi grunaðir um að hafa nauðgað tíu ára dreng. Yngri pilturinn verður leiddur fyrir dómara í Randers í dag þar sem lögreglan mun krefjast gæsluvarðhalds yfir honum, að því er segir í frétt BT  um málið. Lögreglan mun fara fram á það við dómarann að þinghaldið verði lokað almenningi og fjölmiðlum.

Í frétt BT segir að lögreglan muni ekki gefa frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Eldri pilturinn var handtekinn á miðvikudag í síðustu viku. Hann verður í haldi lögreglunnar á sérstakri stofnun fyrir ungmenni í fjórar vikur, samkvæmt úrskurði dómara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert