Fleiri látnir í Toronto

AFP

Þrjú eru látin, þar á meðal árásarmaðurinn, og tólf eru særð eftir skotárás í kanadísku borginni Toronto í gærkvöldi.

Lögreglan hefur staðfest að ung kona og árásarmaðurinn séu látin en hefur ekki gefið upp hver þriðja manneskjan er. Meðal þeirra sem særðust alvarlega í árásinni er átta eða níu ára gömul stúlka. 

Árásarmaðurinn var 29 ára gamall en hann skaut á vegfarendur í gríska hverfinu í borginni um klukkan 22 að staðartíma. Að sögn lögreglu fannst árásarmaðurinn látinn í húsasundi eftir að hafa skipst á skotum við lögreglu. Ekki er vitað hvort hann framdi sjálfsvíg eða hvort hann var skotinn til bana af lögreglu.

Í myndbandsupptöku sem birt hefur verið í kanadískum fjölmiðlum sést dökkklæddur maður koma gangandi eftir gangstétt í hverfinu, taka upp byssu og hefja skothríð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert