Hvetur landsmenn til að horfa til framtíðar

Stjórnarandstaðan í Simbabve, MDC-flokkurinn, hefur sakað framboð Mnangagwa um kosningasvik …
Stjórnarandstaðan í Simbabve, MDC-flokkurinn, hefur sakað framboð Mnangagwa um kosningasvik og hefur innsetningu hans í embætti verið frestað. AFP

Forseti Simbabve, Em­mer­son Mn­angagwa, hvatti í dag þjóð sína til að horfa til framtíðar og segja skilið við þær deilur sem urðu í kjölfar forsetakosninga í landinu í síðasta mánuði.

„Nú er tímabært að segja skilið við kosningarnar og horfa björtum augum til framtíðar,“ sagði Mn­angagwa í ræðu sem hann hélt í dag í tilefni af opinberum hátíðisdegi þar sem sjálfstæðishetjur landsins eru heiðraðar.

Staðan í Simbabve er hins vegar sú að stjórnarandstaðan, MDC-flokkurinn, hefur sakað framboð Mn­angagwa um kosningasvik og hefur innsetningu hans í embætti verið frestað.  

Stjórn­ar­andstaðan hafn­ar niður­stöðum kosninganna sem hún seg­ir vera „falsaðar“. Kosn­ing­arn­ar fóru fram 30. júlí og í byrjun ágúst var til­kynnt að Mn­angagwa, sitj­andi for­seti, væri sig­ur­veg­ari þeirra.

Mn­angagwa, sem var mik­ill stuðnings­maður for­set­ans fyrr­ver­andi Robert Muga­be, hlaut 50,8% at­kvæða. Þar sem hann hlaut meiri­hluta at­kvæðanna þurfti ekki að kjósa á milli tveggja efstu en sá sem hlaut næst­flest at­kvæði er Nel­son Chamisa.

Mn­angagwa hét því fyrir kosningarnar að þær færu friðsamlega fram og að hann myndi einbeita sér að því að endurreisa landið og efnahag þess eftir stjórnartíð Mugabe. Sex létust í mótmælum tengdum kosningunum og hefur Mn­angagwa farið fram á að sjálf­stæð rann­sókn fari fram á dauða mót­mæl­endanna.  

Emmerson Mnangagwa, forseti Simbabve.
Emmerson Mnangagwa, forseti Simbabve. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert