Myndirnar sem fylgja auglýsingunni eru af afar grönnum fyrirsætum sem engar bera nein merki þess að hafa gengið með barn. Myndirnar voru teknar úr umferð í gær þegar Annonsrådet, hópur sem er skipaður sérfræðingum innan auglýsingaheimsins, gagnrýndi myndirnar harðlega.
A post shared by Annonsrådet (@annonsradet) on Aug 13, 2018 at 4:38am PDT
„Þetta er mynd af vefverslun H&M sem sýnir brjóstagjafahaldara. En hvaða, HVAÐA, nýbakaða móðir (eða hvaða manneskja sem nýlega er orðin móðir) lítur svona út?“ segir á Instagram-síðu hópsins.
Annonsrådet segir að ákvörðun fyrirtækisins um að nota fyrirsætur sem hafi aldrei eignast börn sé hættuleg og auki enn á þann fáránlega þrýsting sem settur er á konur um að „verða eðlilegar“ á ný eftir fæðingu.
„Ímyndið ykkur ef H&M hefði frekar sýnt ábyrgð og notað mæður sem eru í raun og veru með börn á brjósti í auglýsingum sínum,“ segir enn fremur í færslu á Instagram. „Ímyndið ykkur það!“
Joanna Morell, blaðafulltrúi H&M í Svíþjóð, segir í samtali við sænska ríkissjónvarpið að fyrirtækið skildi vel gagnrýnina. „Það er rétt, við erum búin að fjarlægja myndirnar. Við skiljum viðbrögð viðskiptavina okkar og munum gæta vel að okkur í framtíðinni.“
Blaðamaðurinn Marie Björk skrifar í skoðunarpistli á vef SVT að sennilega hafi enginn velt myndavalinu neitt sérstaklega fyrir sér hjá H&M áður en auglýsingarnar birtust. „Fitusmánun er svo útbreidd og svo mikil hefð fyrir henni að það þykir eðlilegt að nota horaðar fyrirsætur í hvert skipti sem konur eru sýndar á nærfötunum,“ skrifar hún. „Ég trúi því ekki einu sinni að þeir hafi áttað sig á hvað þetta er hrikaleg móðgun í garð þeirra sem auglýsingin beinist að, það er að segja þeim sem eru með börn á brjósti.“