Bók rannsóknarblaðamannsins Bob Woodward, Fear: Trump in the White House, hefur selst í 1,1 milljón eintaka síðan hún kom út fyrir einni viku. Þar með er hún orðin sú bók sem hefur selst hraðast í 94 ára sögu forlagsins Simon and Schuster.
Bókin fjallar um Donald Trump Bandaríkjaforseta og starfslið hans. Þar er talað um að starfsfólk Hvíta hússins sé á barmi taugaáfalls og að Trump sé haldinn ofsóknaræði á háu stigi.
Bókin seldist í 900 þúsund eintökum fyrsta daginn sem hún kom út, 11. september, bæði sem hefðbundin bók, hljóðbók og í rafrænu formi.
„Það er bara hægt að lýsa sölunni á Fear með einu orði og það orð er „gríðarleg“,“ sagði Jonathan Karp, yfirmaður forlagsins.
Tíunda prentunin á bókinni er í gangi og hefur útgáfurétturinn verið seldur til 24 landa.