Skurðlæknir neitar sök í nauðganamáli

Grant William Robicheaux og Cerissa Laura Riley notuðu bari og …
Grant William Robicheaux og Cerissa Laura Riley notuðu bari og veitingastaði til að finna fórnarlömb sín. Ljósmynd/Lögreglan í Newport

Parið sem ákært er fyrir að hafa nauðgað tveimur konum í Kaliforníu, og er grunað um „hundruð“ brota til viðbótar, neitar sök. Grant William Robicheaux skurðlæknir og Cer­issa Laura Riley, kærasta hans, eru ákærð fyr­ir að hafa ráðist á tvær kon­ur sem þau hittu á bar og veit­ingastað árið 2016.

BBC hef­ur eft­ir sak­sókn­ara í mál­inu að mynd­bönd af mögu­leg­um fórn­ar­lömb­um sem fund­ist hafi í síma sak­born­ing­anna hafi skipt þúsund­um og nú sé unnið að því að bera kennsl á þær kon­ur sem sjást á mynd­bönd­un­um.

Lögmenn parsins segja að Robicheaux og Riley hafi vitað af ásökununum í nokkra mánuði og að þau muni bæði formlega neita sök við fyrsta tækifæri, þegar málið verður tekið fyrir í dómi.

Sak­sókn­ari í málinu segir að parið sé talið hafa notað snyrti­legt út­lit sitt til að vekja falska ör­yggis­kennd hjá fórn­ar­lömb­um sín­um.

„Á nokkr­um mynd­bönd­um sjást kon­ur svo ölvaðar að þær geta hvorki veitt samþykki, né mót­mælt og bregðast því varla við kyn­ferðis­leg­um um­leit­un­um sak­born­ing­anna. Á grund­velli þess­ara sann­ana telj­um við að þarna úti séu enn mörg fórn­ar­lömb­ sem ekki hafa verið bor­in kennsl á.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert