3 látnir eftir skotárás í Maryland

Mynd/Skjáskot af vef CNN

Þrír eru sagðir látnir og tveir særðir eftir að kona hóf skotárás við vöruskemmur lækningavöruframleiðandans Rite Aid í Harford sýslu, um 40 kílómetra norðaustur af Baltimore í Maryland í Bandaríkjunum. Þetta staðfesta lögregluyfirvöld á svæðinu. CNN greinir frá.

Konan er sögð hafa notað skammbyssu við árásina, en hún er nú í haldi lögreglu á sjúkrahúsi. Ekki hefur verið greint því hverjir áverkar hennar eru en lögreglumenn hleyptu ekki af skotum í aðgerðinni, að sögn lögreglustjóra. Alríkislögreglan (FBI) var komin á staðin aðeins nokkrum mínútum eftir að tilkynnt var um fyrstu skothvellina, um klukkan níu að staðartíma.

Lögregla hefur hvatt fólk til að halda sig fjarri árásarvettvanginum en á Twitter kemur fram að ekki sé talið að frekari hætta sé yfirvofandi. Um 1.000 manns starfa við vöruskemmur Rite Aid í Harford-sýslu, að sögn talsmanns fyrirtækisins.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Kort/Google
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert