Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu vonast eftir öðrum leiðtogafundi með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við fyrsta tækifæri. Frá þessu greindi Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, við lok þriggja daga heimsóknar hans til Norður-Kóreu í morgun.
Trump og Kim funduðu í Singapúr 12. júní en það var í fyrsta skipti sem leiðtogar Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hittast. Helstu niðurstaða fundarins var að stefna að kjarnorkuvopnalausum Kóreuskaga.
Ráðamenn í Washington og Pyongyang hafa tekist á um þýðingu yfirlýsingarinnar og hvernig hún verður efnd og framkvæmd. Ríkisstjórn Trumps hefur lagt höfuðáherslu á að stjórnvöld í Norður-Kóreu segi skilið við allar kjarnorkuáætlanir og eyði kjarnorkuvopnum sínum.
Árangur virðist hafa náðst í viðræðunum eftir heimsókn Moon til Norður-Kóreu þar sem Kim hefur fallist á að loka endanlega Tongchang-ri-tilraunasvæðinu og að þetta yrði gert í viðurvist sérfræðinga frá þeim þjóðum sem ættu aðild að málinu svo þeir gætu sannreynt að ekki væri hægt a nota svæðið.
Ráðamenn í Washington glöddust yfir niðurstöðu fundar Moon og Kim og hefur Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, boðið norðurkóreskum starfsbróður sínum til fundar í New York í næstu viku.