Skjálfti upp á 6,6 stig

Jarðskjálfti sem mældist 6,6 stig reið yfir vesturströnd Kanada skömmu fyrir klukkan sex í morgun að íslenskum tíma. Ekki er vitað um tjón af völdum skjálftans.

Upptök skjálftans voru 218 km suðvestur af Port Hardy, smábæ í Bresku-Kólumbíu. Ekki var gefin út flóðbylgjuviðvörun í kjölfar skjálftans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert