Suu Kyi svipt heiðursverðlaunum

Aung San Suu Kyi.
Aung San Suu Kyi. AFP

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa svipt Aung San Suu Kyi, leiðtoga Búrma (Mijanmar), æðstu viðurkenningu samtakanna vegna „afskiptaleysis“ í málefnum rohingja.

Suu Kyi hlaut verðlaunin Ambassador of Conscience árið 2009 þegar hún var enn í stofufangelsi.

„Við erum virkilega óánægð með að þú sért ekki lengur fulltrúi vonar, hugrekkis og verjandi mannréttinda,“ sagði yfirmaður Amnesty International, Kumi Naidoo, í bréfi til Suu Kyi.

„Amnesty International getur ekki réttlætt áframhaldandi stöðu þína sem viðtakandi Ambassador of Conscience-verðlaunanna og því ætlum við með sorg í hjarta að svipta þig þeim.“

Suu Kyi var látin vita af ákvörðuninni í gær en hún hefur ekki tjáð sig opinberlega um hana.

Búrmíski her­inn hóf í ág­úst í fyrra aðgerðir gegn rohingja-múslim­um í Rak­hine, sem hafa orðið þess vald­andi að rúm­lega 700.000 rohingj­ar flúðu til ná­granna­rík­is­ins Bangla­dess þar sem þeir búa í flótta­manna­búðum við þröng­an kost.

Stuðnings­menn Suu Kyi segja hana geta gert lítið til að bæta stöðuna, þar sem her­inn hafi enn of mik­il völd í Búrma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert