Acosta kominn með passann

Jim Acosta, fréttamaður CNN.
Jim Acosta, fréttamaður CNN. AFP

Hvíta húsið hefur látið fréttamann CNN sem starfar í Hvíta húsinu, Jim Acosta, fá fréttamannapassann sinn aftur. Innan við vika er liðin síðan passi hans var afturkallaður eftir rifrildi hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta á blaðamannafundi.

Ákvörðun var tekin nokkrum dögum eftir að dómari fyrirskipaði að Hvíta húsið ætti að láta hann hafa passann á nýjan leik.

Þegar Hvíta húsið tilkynnti að Acosta fengi passann aftur kom fram að gefnar hefðu verið út nýjar reglur sem skuli hafa í huga á blaðamannafundum í framtíðinni.

Ein þeirra er að aðeins er leyfð ein spurning frá hverjum blaðamanni, að sögn BBC.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert