Stöðvar tilskipun Trumps tímabundið

Alríkisdómari hefur stöðvað tímabundið ákvörðun ríkisstjórnar Bandaríkjanna um að synja fólki sem kemur til Bandaríkjanna með ólöglegum hætti um heimild til þess að sækja um hæli í landinu.

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, gaf út yfirlýsingu þar að lútandi fyrr í mánuðinum og sagði að þetta varði þjóðaröryggi. Yfirlýsingin var gefin út á sama tíma og straumur fólks frá ríkjum Mið-Ameríku nálgaðist Bandaríkin á leið sinni í gegnum Mexíkó. 

Það er Jon Tigar, alríkisdómari í San Francisco, sem hefur gefið út tímabundna frestun á gildistöku tilskipunar Trumps.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert