Donald Trump Bandaríkjaforseti lét James Comey, fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar FBI, fá það óþvegið í tveimur færslum á Twitter í dag. Trump segir Comey hafa slegið met í lygum.
Dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings boðaði Comey á sinn fund sem fór fram á föstudag til að svara spurningum nefndarmanna um framgöngu Comey á meðan hann stýrði Rússarannsókninni svonefndu.
Í tísti sínu segir Trump að Comey hlyti að hafa slegið öll met yfir flestu lygar fyrir þingnefnd á einum degi. Hann segir að það sé búið að afhjúpa samsæri fólks sem myndi gera allt til að koma í veg fyrir að hann yrði kosinn forseti. Þá uppnefnir hann fyrrverandi forstjóra FBI og kallar hann „Leakin’ James Comey“.
Leakin’ James Comey must have set a record for who lied the most to Congress in one day. His Friday testimony was so untruthful! This whole deal is a Rigged Fraud headed up by dishonest people who would do anything so that I could not become President. They are now exposed!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 9, 2018
Í öðru tísti fullyrðir Trump að Comey hafi í 245 skipti ekki getað svarað þingnefndinni vegna minnisleysis eða skorts á þekkingu.
On 245 occasions, former FBI Director James Comey told House investigators he didn’t know, didn’t recall, or couldn’t remember things when asked. Opened investigations on 4 Americans (not 2) - didn’t know who signed off and didn’t know Christopher Steele. All lies!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 9, 2018
Comey varði þá aðila sem komu að Rússarannsókninni meðan hann stjórnaði henni og tók fyrir að þeir hafi gerst sekir um hlutdrægni gegn Trump. Þá kom fram í svörum hans að fjórir einstaklingar hafi verið undir rannsókn á þeim tíma en að Trump hafi ekki verið einn af þeim.
Repúblikar og Trump hafa margoft gagnrýnt Comey fyrir að skýla Hillary Clinton og vernda hana gegn lögsókn vegnar notkunar hennar á persónulegu tölvupóstfangi sínu í störfum sínum sem utanríkisráðherra.