Mótmælandi varð fyrir bíl

AFP

„Gulvestungur“ lést í gærkvöldi eftir að hafa orðið fyrir flutningabíl á hringtorgi við útkeyrslu af hraðbrautinni skammt frá Avignon í Suður-Frakklandi.

Flutningabílstjórinn er í haldi lögreglu en sá sem lést, þátttakandi í mótmælum gegn stjórnvöldum, var 23 ára gamall, segir aðstoðarsaksóknari Avignon, Caroline Armand, í viðtali við fjölmiðla í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert