Sjö látnir í Ankara

AFP

Sjö eru látnir og yfir 40 eru slasaðir eftir lestarslys í höfuðborg Tyrklands, Ankara, í nótt. Slysið varð þegar hraðlest var ekið á tengivagn á brautarstöð í borginni. Meðal þeirra sem létust var ökumaður hraðlestarinnar. Alls eru 46 slasaðir og af þeim eru þrír í lífshættu, að sögn borgarstjórans í Ankara, Vasip Sahin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert