Fjórða fórnarlambið látið

Fjórir eru nú látnir eftir skotárásina á þriðjudag.
Fjórir eru nú látnir eftir skotárásina á þriðjudag. AFP

Tala látinna eftir skotárás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudag er komin upp í fjóra, en fjórða fórnarlambið lést af sárum sínum í dag. Tólf til viðbótar særðust í árásinni, að minnsta kosti einn mjög alvarlega. Fjögur fórnarlamabanna eru enn á sjúkrahúsi. BBC greinir frá.

Árásarmaðurinn, Cherif Chekatt, var felldur af lögreglu í gær en hann hafði verið á flótta frá því hann framdi ódæðisverkið.

Franska lög­regl­an hef­ur hand­tekið for­eldra og tvo bræður hans, en alls hafa fimm manns verið hand­tekn­ir í tengsl­um við árás­ina. Sá fimmti er ekki skyld­ur árás­ar­mann­in­um.

Innanríkisráðherra Frakklands, Christophe Castaner, opnaði jólamarkaðinn aftur í dag, en Emanual Macron, forseti Frakklands, er einnig væntanlegur til Strassborgar.

Chekatt, sem var 29 ára, hafði ít­rekað verið dæmd­ur fyr­ir glæpi og segja fjöl­miðlar að hann hafi öfga­væðst inn­an veggja fang­els­is­ins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert