Þrjú ljón urðu fyrir lest og drápust

Asísk ljón eru í kringum 500 og eru heimkynni þeirra …
Asísk ljón eru í kringum 500 og eru heimkynni þeirra á átta mismundi svæðum á Indlandi. Mynd úr safni. AFP

Þrjú ljón drápust er þau urðu fyrir vöruflutningalest á vesturhluta Indlandi í dag. Lestin átti leið um verndarsvæði í Gir­skóg­in­um í Gujarat-fylki þar sem ljónin dvelja en þau eru af tegund sem er í útrýmingarhættu.

Öll þrjú drápust samstundis. Ljónin voru öll um það bil tveggja ára gömul,“ segir D T Vasavada, talsmaður skógræktaryfirvalda í samtali við AFP-fréttastofuna.

Rannsókn á slysinu er hafin og verður kannað hvort lestin hafi verið á of mikilli ferð og hvort starfsfólk verndarsvæðisins hafi ekki sinnt störfum sínum sem skyldi. „Ef svo reynist vera verður gripið til alvarlegra aðgerða,“ segir Vasavada.

Ljónin tilheyrðu sex ljóna hjörð í Gir­skóg­in­um en verndarsvæðið er heimkynni um 500 villtra asískra ljóna (pant­hera leo persica).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert