Páfinn samþykkir afsögn Salazar

Frans páfi að störfum.
Frans páfi að störfum. AFP

Frans páfi hefur samþykkt afsögn Alexanders Salazar, aðstoðarbiskups í Los Angeles, vegna „óviðeigandi hegðunar“ hans gagnvart manneskju undir lögaldri á tíunda áratugnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vatíkaninu.

Að sögn Vatíkansins leiddi rannsókn í Kaliforníu í ljós að grunsemdir um hegðun hans væru á rökum reistar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert