Frönskum sjómanni, sem saknað hafði verið á Miðjarðarhafinu vikum saman, var bjargað í gærkvöldi af ísraelska hernum út af Gasa-ströndinni.
Fram kemur í frétt AFP að maðurinn hafi fundist á vélarvana báti með biluð fjarskiptatæki og stýrisbúnað. Maðurinn var fluttur undir læknishendur.
Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um björgunina eða nafn mannsins.
IDF Navy rescued a French sailor last night who was lost at sea for weeks with a broken radio and no steering system. Our soldiers came across his boat near the Gaza Strip, rescued him, and took him for medical treatment. May he make his way home safely soon! pic.twitter.com/yzknn4PXKn
— Israel Defense Forces (@IDF) January 18, 2019