Fréttin ekki nákvæm

Robert Mueller, sérstakur saksóknari í rannsókn á afskiptum Rússa af …
Robert Mueller, sérstakur saksóknari í rannsókn á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016. AFP

Sérstakur saksóknari, Robert Mueller, segir frétt Buzzfeed, um að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi sagt lögmanni sínum til margra ára, Michael Cohen, að bera ljúgvitni fyrir þingi, ekki nákvæma. 

Á vef Buzzfeed News segir að Cohen hafi sagt þeim sem vinna að rannsókninni að Trump hafi mælt með því að hann ætti að ljúga um áætlanir um að byggja Trump Tower í Moskvu. Trump sagði í kjölfarið að þetta væri falsfrétt og að fyrrverandi lögmaður hans hafi logið að þeim sem vinna að rannsókninni til þess að stytta fangelsisvist sína.

Embætti sérstaks saksóknara sendi frá sér yfirlýsingu um að fréttin væri ekki nákvæm en ritstjóri Buzzfeed, Ben Smith, segir á Twitter að hann standi við fréttina. 

Yfirlýsing skrifstofu Muellers er mjög stutt og ekki tekið fram hvað í frétt Buzzfeed sé ekki alveg nákvæmt annað en að lýsing Buzzfeed sé ekki alveg samkvæmt sögunni.

BBC segir afar sjaldgæft að skrifstofa Muellers sendi slíka yfirlýsingu frá sér. Rannsókn Mu­ell­er snýr að því hvernig Rúss­ar höfðu áhrif á kosn­ing­arn­ar árið 2016 og hvort ein­hver af sam­starfs­mönn­um Trumps störfuðu með þeim. 

Buzzfeed

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert