Lést eftir að lögreglubíll ók á hana

Lögreglumenn í London að störfum. Mynd úr safni.
Lögreglumenn í London að störfum. Mynd úr safni. AFP

Kona lést í Bretlandi í gærkvöldi eftir að hún varð fyrir lögreglubíl sem var á leið í neyðarútkall. Atburðurinn átti sér stað í Walthamstow í London seint í gærkvöldi, en sjúkrabíll og lögregla voru að bregðast við útkalli vegna karlmanns sem sagður var vera að hóta fólki.

Guardian hefur eftir talsmanni lögreglu að lögreglumennirnir hafi stöðvað bílinn og reynt að hlúa að konunni þar til sjúkrabíll kom á staðinn, en hún var lýst látin á vettvangi.

Málið er nú til rannsóknar og hefur innra eftirlit lögreglu verið tilkynnt um það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert