Frestar stefnuræðu uns deilan leysist

Donald Trump hefur ákveðið að fresta stefnuræðu sinni í bandaríska …
Donald Trump hefur ákveðið að fresta stefnuræðu sinni í bandaríska þinginu þar til fjárlagadeilan hefur verið leyst og segir hann ákvörðunina algjörlega sína. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að fresta stefnuræðu sinni í bandaríska þinginu þar til lausn hefur verið fundin á fjárlagadeilunni.

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar þingsins, meinaði Trump í gærkvöldi að flytja stefnuræðu sína í næstu viku af ör­ygg­is­ástæðum. Trump brást við með því að segja að Pe­losi vildi ekki heyra sann­leik­ann um ör­yggi á landa­mær­um Banda­ríkj­anna og Mexí­kó.

Frá þessu greinir hann í færslu á Twitter þar sem hann segir að Pelosi hafi boðið honum að halda stefnuræðuna á sínum tíma þrátt fyrir að lokun fjölmargra alríkisstofnana stæði enn yfir og að hann hefði samþykkt. „Hún skipti svo um skoðun vegna lokunarinnar, og lagði til að ræðan yrði haldin seinna.“ Trump heldur svo áfram og segir að það sé ekki hennar að ákveða hvenær hann haldi ræðuna. „Ég mun halda stefnuræðuna þegar lokunin er að baki,“ segir Trump loks.

Í færslunni segir hann jafnframt að það komi ekki til greina að flytja stefnuræðuna annars staðar þar sem enginn annar staður komist í hálfkvisti við þingsalinn hvað sögu, hefðir og mikilvægi varðar. Trump segist hlakka til að halda „stjórkostlega ræðu í náinni framtíð.“

Hluti alríkisstofnana í Bandaríkjunum hefur verið lokaður í á fimmtu viku frá því að Trump neitaði að skrifa undir fjárlögin nema demókratar í öld­unga­deild Banda­ríkjaþings samþykki að veita fjár­magni til bygg­ing­ar veggjar á landa­mær­um lands­ins að Mexí­kó.

Banda­ríkjaþing mun á fimmtu­dag kjósa um tvö aðskil­in frum­vörp sem geta, verði þau samþykkt, bundið endi á lok­an­ir rík­is­stofn­ana. Annað frum­varpið nýt­ur stuðnings Don­ald Trumps Banda­ríkja­for­seta og er þar gert ráð fyr­ir 5,7 millj­örðum doll­ara í múr­inn sem for­set­inn vill reisa á landa­mær­um Banda­ríkj­anna og Mexí­kó. Hitt frum­varpið ger­ir ein­fald­lega ráð fyr­ir að fjár­lög fá­ist fram­lengd til 8. fe­brú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert