Rússar saka Guaido um tilraun til valdaráns

Juan Guaido lýsti sig starf­andi for­seta lands­ins í gær meðan …
Juan Guaido lýsti sig starf­andi for­seta lands­ins í gær meðan á fjölda­mót­mæl­um stóð gegn for­set­an­um Nicolas Maduro. Stjórnvöld í Rússlandi styðja Maduro og saka Guaido um tilraun til valdaráns. AFP

Stjórnvöld í Rússlandi saka Juan Guaido, þingforseta Venesúela, um tilraun til valdaráns en Guaido lýsti sig starf­andi for­seta lands­ins í gær meðan á fjölda­mót­mæl­um stóð gegn for­set­an­um Nicolas Maduro.

Á sama tíma hafa Bandaríkin, Frakkland, Bras­il­ía, Kól­umbía, Perú, Kan­ada og Danmörk lýst yfir stuðningi við Guaido.

Dimitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Kreml, segir að Rússar styðji Maduro. Að þeirra mati er hann lögmætur leiðtogi Venesúela en tilraun Guaido til valdaráns brjóti gegn alþjóðalögum. Rússar hafa stutt við ríkisstjórn Maduros síðustu ár, meðal annars með lánveitingum og aukinni hernaðarsamvinnu.

Yfirvöld á Spáni hafa ekki tekið afstöðu í yfirvofandi stjórnarkrísu í Venesúela en Josep Borrell, utanríkisráðherra Spánar, segir að ástandið verði einungis leyst með kosningum.

13 látnir í mótmælum

Guaido lýsti sig forseta í miðjum fjöldamótmælum gegn Maduro sem hafa staðið yfir í nokkra daga og hafa 13 manns látist í mótmælunum. Þetta eru fjölmennustu mótmælin frá því að gríðarstór mót­mæla­bylgja gekk yfir Venesúela í apríl og maí 2017, en mik­il efna­hagskreppa hef­ur verið í land­inu und­an­far­in ár. Veru­lega dró hins veg­ar úr mót­mæl­un­um eft­ir að átök mót­mæl­enda og hers urðu mann­skæð, en auk þess voru hundruð mót­mæl­enda hand­tekn­ir.

Mótmælendur sem fjölmenna á götur Caracas, höfuðborgar Venesúela, þessa dagana skiptast í tvær fylkingar. Annars vegar eru það stuðningsmenn Maduro sem klæðast rauðu og fjölmenna fyrir utan forsetahöllina og mótmæla valdaráni sem þeir segja að sé stutt af Bandaríkjastjórn. Hins vegar má sjá tugþúsundir mótmælenda sem klæðast hvítu, veifa venesúelska fánanum og kyrja: „Guaido, vinur, fólkið stendur með þér.“

Tug­ir þúsunda mót­mæl­enda hafa safnast sam­an á göt­um Venesúela síðustu …
Tug­ir þúsunda mót­mæl­enda hafa safnast sam­an á göt­um Venesúela síðustu daga til að mót­mæla Maduro og rík­is­stjórn hans og eru mótmælin þau fjölmennustu frá því að gríðarstór mót­mæla­bylgja gekk yfir Venesúela í apríl og maí 2017. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert