Þrír eru látnir eftir skotárás í Utrecht í Hollandi í morgun. Þetta staðfestir Jan van Zanen, borgarstjóri Utrecht, í samtali við fjölmiðla. Fimm eru særðir, þar af þrír lífshættulega. „Málið er rannsakað líkt og um hryðjuverk sé að ræða,“ segir Zanen.
Árásarmaðurinn hóf skothríð á farþega í sporvagni við 24. október-torg í borginni rétt fyrir klukkan tíu að staðartíma í morgun. Lögreglan hefur birt mynd af hinum grunaða, Gökmen Tanis, 37 ára gömlum Tyrkja. Hann flúði af vettvangi á stolnum bíl, rauðum Renault Clio, og hefur lögreglan óskað eftir vitnum í tengslum við ferðir Tanis. Bíllinn fannst fyrir nokkru í nærliggjandi götu.
Talið er að Tanis hafi verið einn að verki en lögreglan útilokar ekki að hann hafi átt sér vitorðsmenn. Hæsta viðbúnaðarstigi vegna hryðjuverkaógnar hefur verið lýst yfir í borginni en það hefur ekki verið gert áður. Öryggisgæsla hefur verið stóraukin á Schipol-flugvellinum í Amsterdam og landamæragæsla hefur sömuleiðis verið hert.
Lögreglan hefur umkringt íbúðarhúsnæði sem er í nokkur hundruð metra fjarlægð frá torginu þar sem árásin átti sér stað. Ekki hefur fengist staðfest hvort Tanis sé inni í byggingunni. Íbúum í borginni hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra þar til frekari fregnir berast.
Fréttin hefur verið uppfærð