Segja of fáar þyrlur í N-Noregi

Fylkisstjórinn í Troms, Elisabeth Aspaker, segir að björgun farþega skemmtiferðaskipsins Viking Sky sýni þörfina á fleiri björgunarþyrlum í Norður-Noregi. Viking Sky lenti í vanda fyrir utan Møre og tóku fimm björgunarþyrlur þátt í að bjarga 500 af 1.373 farþegum frá borði.

Viking Sky var sjósett í Tromsø árið 2017 en það var að koma frá Tromsø á leið til Stavanger þegar það varð aflvana á laugardag.

Aspaker segir í samtali við norska ríkisútvarpið að hún þori ekki að hugsa þá hugsun til enda ef þetta hefði gerst fyrir utan strönd Norður-Noregs en mun fleiri þyrlur eru í Suður-Noregi en Norður-Noregi.

Skipið kom til hafnar í Molde síðdegis í gær en um tíma á laugardag var óttast að það myndi stranda. Mjög vont veður var á þessum slóðum og erfiðar aðstæður til björgunar. 

Frétt NRK

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert