Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði í dag undir yfirlýsingu þar sem fram kemur að Bandaríkin viðurkenni Gólanhæðir sem hluta af Ísrael.
„Þetta hefur verið lengi í burðarliðnum,“ sagði Trump þegar hann tilkynnti um ákvörðun Bandaríkjastjórnar í Hvíta húsinu í dag, með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sér við hlið.
Gólanhæðir voru hernumdar af Ísraelum í sex daga stríðinu árið 1967 en voru áður hluti af Sýrlandi. Svæðið, sem hæðirnar ná yfir, er 1.250 km² og er ofan Jórdandalsins og hernaðarlega mikilvægt.
Alþjóðasamfélagið hefur ekki viðurkennt yfirráð Ísraela yfir landsvæðinu en Trump hefur upp á síðkastið sagt að tími sé kominn til að Bandaríkin viðurkenni yfirráð Ísraela yfir Gólanhæðum.
Ríkisstjórn Sýrlands fordæmir ákvörðun Trump og segir afstöðu Bandaríkjanna gagnvart Gólanhæðum sýna berlega lítilsvirðingu þeirra fyrir alþjóðalögum.