Grínistanum spáð sigri

Petro Poroshenko (til vinstri) og Volodymyr Selenskí í kappræðum á …
Petro Poroshenko (til vinstri) og Volodymyr Selenskí í kappræðum á föstudaginn. AFP

Kjörstaðir hafa verið opnaðir í annarri umferð forsetakosninganna í Úkraínu. Grínistinn Volodymyr Selenskí er talinn líklegur sigurvegari.

Fáir höfðu trú á Selenskí sem er 41 árs, til að byrja með enda hefur hann enga reynslu í póli­tík fyr­ir utan að hafa leikið for­seta í sjón­varpsþátt­um. Miðað við skoðanakannanir mun engu að síður hann bera sigurorð af núverandi forseta landsins, Petro Porosjenkó, eftir að hafa unnið fyrri umferð forsetakosninganna örugglega. 

Mikil óánægja ríkir í Úkraínu vegna fátæktar, spillingar og átaka við aðskilnaðarsinna sem njóta stuðnings rússneskra stjórnvalda.

Frá kjörstað í morgun.
Frá kjörstað í morgun. AFP
Ljósmynd af Volodymyr Selenskí hengd upp á kjörstað.
Ljósmynd af Volodymyr Selenskí hengd upp á kjörstað. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert