„Alltaf trúað á kraftaverk“

Scott Morrison sigri hrósandi ásamt fjölskyldu sinni.
Scott Morrison sigri hrósandi ásamt fjölskyldu sinni. AFP

Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, var sigri hrósandi eftir að samsteypustjórn mið-hægriflokka sem hann leiðir, kom mörgum á óvart í þingkosningunum þar í landi.

„Ég hef alltaf trúað á kraftaverk,“ sagði Morrison og bætti við: „Hversu góð þjóð er Ástralía!“

Allt lítur út fyrir að stjórnin haldi völdum en eftir á að koma í ljós hvort Morrison muni takast að mynda meirihlutastjórn.

Aðeins níu mánuðir eru liðnir síðan hann tók við embætti forsætisráðherra eftir að hafa velt forvera sínum Malcolm Turnbull úr sessi.

„Ég sagði að ég ætlaði að vinna í þágu ykkar og það ætla ég að gera á hverjum einasta degi,“ bætti Morrison við.

Morrison kyssir dætur sínar.
Morrison kyssir dætur sínar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert