Trúir því að Kim standi við orð sín

Donald Trump Bandaríkjaforseti í golfi í Japan í dag.
Donald Trump Bandaríkjaforseti í golfi í Japan í dag. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti kippir sér ekki upp við áhyggjur af nýlegum eldflaugatilraunum norður-kóreskra stjórnvalda og segir að um „smávægileg vopn“ sé að ræða.

John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, hélt því fram fyrr um helgina að eldflaugatilraunir Norður-Kóreu brytu í bága við samþykktir Sameinuðu þjóðanna, en forsetinn virðist ekki vera á sömu skoðun ef marka má Twitter-færslu hans frá því í morgun, þar sem fram kemur að forsetinn trúi því að Kim Jong-un leiðtogi Norður-Kóreu muni standa við þau loforð sem hann hafi gefið honum.

Trump er nú staddur í opinberri heimsókn í Japan og snæddi hann morgunverð með forsætisráðherra Japan, Shinzo Abe, áður en þeir ræddu málin yfir golfhring fyrr í morgun.

Donald Trump og eiginkona hans Melania sóttu súmóglímukeppni í Japan …
Donald Trump og eiginkona hans Melania sóttu súmóglímukeppni í Japan í dag. AFP

Yfirlýsing Trump um eldflaugatilraunirnar er ekki fyrsta tilvikið þar sem forsetinn er bersýnilega á annarri skoðun en þjóðaröryggisráðgjafi sinn og sömuleiðis gestgjafi sinn, en Abe hefur sagt tilraunirnar vera „ákaflega hörmulegar“.

Bolton og Trump hafa einnig nýlega verið ósammála um hvernig best sé að nálgast ástandið í Venesúela og um tengsl Bandaríkjanna við Íran.

View this post on Instagram

Great morning of golf with Prime Minister @ShinzoAbe at Mobara Country Club in Chiba, Japan!

A post shared by President Donald J. Trump (@realdonaldtrump) on May 25, 2019 at 10:00pm PDT

Meintar sættir Bandaríkjanna og Norður-Kóreu virðast tvísýnar eftir að seinni fundi leiðtoganna tveggja Kim Jong-un og Trump í Víetnam lauk án nokkurs samkomulags. Í kjölfar síaukinnar spennu undanfarna mánuði hafa norður-kóresk yfirvöld framkvæmt nokkrar vopnatilraunir.

Samkvæmt BBC brjóta umræddar vopnatilraunir ekki loforð Norður-Kóreumanna um að prófa ekki kjarnorkuvopn, en þær hafa þó vakið nokkurn ugg í Japan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert