Khamenei beittur efnahagsþvingunum

Ayatollah Ali Khamenei fyrr í þessum mánuði.
Ayatollah Ali Khamenei fyrr í þessum mánuði. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að beita Ayatollah Ali Khamenei, erkiklerk og æðsta ráðamann Írans, „grimmum“ efnahagsþvingunum. Hann segir að Khamenei beri höfuðábyrgðina á ákvörðunum íranskra stjórnvalda.

„Við munum halda áfram að auka þrýstinginn á Tehran,“ sagði Trump eftir að hann undirritaði fyrirskipun um að beita efnahagsþvingununum. „Íran má aldrei eiga kjarnorkuvopn“.

Forsetinn bætti við að Bandaríkin vilji ekki eiga í átökum og sagði að það færi eftir viðbrögðum stjórnvalda í Íran hvort efnahagsþvingununum lýkur á morgun eða þær haldi mögulega áfram næstu árin.

Donald Trump.
Donald Trump. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert