Karlmaður, sem stal sjúkrabíl í Ósló í morgun og ók honum viljandi á vegfarendur er 32 ára gamall Norðmaður. Maðurinn og kona, sem talin er tengjast málinu, hafa tengsl við hægrisinnaða öfgahópa.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Óslóarlögreglunnar sem haldinn var rétt í þessu.
Maðurinn var vopnaður haglabyssu og Uzi- hríðskotabyssu og ók viljandi upp á gangstéttirnar áður en lögreglu tókst að stöðva hann með því að skjóta á dekk sjúkrabílsins. Í kjölfarið skiptust maðurinn og lögregla á skotum, uns tókst að handsama hann. Lögregla fann fíkniefni í sjúkrabílnum.
Hann er nú í haldi lögreglu vegna tilraunar til manndráps.
Á fundinum sagði lögregla að maðurinn hefði margoft áður komist í kynni við lögreglu og að það sama gilti um 25 ára gamla konu sem var eftirlýst vegna málsins, en fannst fljótlega í verslunarmiðstöð í Ósló. Hún er einnig norsk.
Á fundinum kom fram að ofsaaksturinn hafi ekki verið skilgreindur sem hryðjuverk.
Maðurinn ók á nokkra vegfarendur, þeirra á meðal sjö mánaða gamla tvíbura, sem voru í barnavagni, og móður þeirra sem ók vagninum. Í frétt NRK, norska ríkisútvarpsins, segir að börnin séu lítilsháttar slösuð eftir ákeyrsluna.