Dómari véfengir aftökuaðferð í alríkisfangelsum

Aftökuklefinn í fangelsinu í Jackson í Georgíu. Mynd úr safni.
Aftökuklefinn í fangelsinu í Jackson í Georgíu. Mynd úr safni. AFP

Bann hefur verið sett við öllum aftökum fanga sem sitja í alríkisfangelsum eftir að dómari úrskurðaði að vafi léki á lagalegri heimild fyrir aftökunum. BBC greinir frá.

Banda­rísk al­rík­is­yf­ir­völd fyr­ir­skipuðu í sumar að dauðarefs­ing­ar verði fram­kvæmd­ar á ný eft­ir 16 ára hlé. Til­kynn­ing­in kom frá dóms­málaráðuneyt­inu þegar dóms­málaráðherr­ann William Barr sagðist í yf­ir­lýs­ingu hafa fyr­ir­skipað fang­els­is­mála­stofn­un að setja á dag­skrá af­tök­ur fimm fanga.

Fimmmenningarnir sitja í alríkisfangelsum í Indiana-ríki og stóð til að taka þá af lífi í desember og janúar. Dómari úrskurðaði hins vegar nýlega að véfenging á aftökuaðferðinni í máli fjögurra mannanna fengist líklega staðfest.

Sagði dómarinn Tanya S. Chutkan að fjórmenningarnir yrðu fyrir „óbætanlegum skaða“ væru þeir teknir af lífi án þess að dómstóll hlýddi á mál þeirra. Gagnrýni mannanna snýst um að aftakan fari fram með banvænni sprautu. Aftöku í máli fimmta mannsins var frestað með öðrum úrskurði í síðasta mánuði.

78 manns voru dæmd­ir til dauða í Banda­ríkj­un­um á ára­bil­inu 1988 — 2018, en ein­ung­is þrír hafa verið tekn­ir af lífi á þessu tíma­bili. 62 fang­ar, sem al­rík­is­yf­ir­völd hafa dæmt til dauða, sitja í fang­elsi í dag. Kom þessi óformlega frestun sem verið hefur í gildi frá 2003 til eftir að dómstólar úrskurðuðu trekk í trekk gegn aftöku með banvænni sprautu sem hefur verið algengasta aðferðin.

Barr fyr­ir­skipaði hins vegar í sumar fang­els­is­mála­stofn­un að taka upp viðauka sem heim­il­ar að lyfið Pentobarbital verði notað eitt og sér við af­tök­ur, í stað þriggja lyfja sem áður voru notuð við af­tök­ur. Pentobarbital er áhrifa­mikið ró­andi lyf sem hæg­ir á lík­ams­starf­sem­inni, m.a. tauga­kerf­inu, og get­ur þannig slökkt á allri lík­ams­starf­semi.

Pentobarbital er líka eitt þeirra lyfja sem eru í áðurnefndum lyfja­kokteil.

Chutkan sagði það hins vegar vera brot á alríkislögum að fangar á dauðadeild alríkisfangelsa væru teknir af lífi með öðrum hætti en fangar í ríkisfangelsum í sama ríki, sem í þessu tilfelli er Indiana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert