Engar konur í pallborði um femínisma

Feðraveldið lifir enn góðu lífi í Pakistan og hafa gagnrýnendur …
Feðraveldið lifir enn góðu lífi í Pakistan og hafa gagnrýnendur sagt karlkyns þátttakendur í pallborðinu nota femínisma til að koma sjálfum sér á framfæri. AFP

Menningarráð Pakistan stendur fyrir pallborðsumræðum um femínisma í dag. Dagskráin olli hins vegar fjaðrafoki þegar hún var birt, enda átti engin kona að taka þátt í umræðunum.

Yfirskrift pallborðsins var „Femínismi: Hin hliðin“. Menningarráðið var harðlega gagnrýnt og hefur í kjölfarið breytt yfirskriftinni og boðið tveimur konum að taka þátt í pallborðinu.

Feðraveldið lifir enn góðu lífi í Pakistan og hafa gagnrýnendur sagt karlkyns þátttakendur í pallborðinu nota femínisma til að koma sjálfum sér á framfæri. Samkvæmt umfjöllun BBC um málið bentu þó margir á að karlmenn ættu auðvitað að fá að tjá sig um femínisma, það vekti þó furðu að engin kona ætti að fá að vera þátttakandi í umræðunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert