Emil var sá eini sem var ákærður

Emil Ostrovko þarf að afplána 8 ár fyrir fíkniefnabrot.
Emil Ostrovko þarf að afplána 8 ár fyrir fíkniefnabrot. Ljósmynd/Amnesty International

Emil Ostrovko beið eftir kærustu sinni í stræt­is­vagna­skýli í útjaðri Minsk í apríl árið 2018. Þau ætluðu að verja deginum saman. Skyndi­lega birtust lögreglu­menn sem börðu Emil og hand­tóku fyrir að dreifa ólög­legum vímu­efnum. Hann var aðeins 17 ára. 

„Fyrr á árinu 2018 hafði Emil ráðið sig í vinnu eftir skóla sem sendill hjá netfyr­ir­tæki. Vinnu­veit­andi hans hafði tjáð honum að pakki sem hann átti að afhenda inni­héldi aðeins löglega reyktób­aks­blöndu.

Eftir að hafa setið í varð­haldi í marga mánuði hlaut Emil tíu ára fang­els­isdóm fyrir vímu­efna­við­skipti sem síðar var lækk­aður í átta ár þegar nokkrar ákærur á hendur honum voru felldar niður. Rann­sak­endur leituðu aldrei að eiganda fyrir­tæk­isins sem Emil starfaði fyrir eða nokkrum öðrum. Emil var sá eini sem var ákærður,“ segir á vef Íslandsdeildar Amnesty International en mál Emils er hluti af alþjóðlegri her­ferð Am­nesty In­ternati­onal þar sem þrýst er á stjórn­völd víða um heim.

Þúsundir barna í fangelsum

Emil Ostrovko.
Emil Ostrovko. Amnesty International

Emil var atorku­samur, umhyggju­samur unglingur sem naut þess að læra og passa upp á yngri systur sína, áður en hann var hand­tekinn. Nú þegar hann situr í fang­elsi hefur honum ekki verið gert kleift að ljúka námi og áform hans um háskólanám hafa verið að engu gerð.

Emil er meðal 15.000 einstak­linga sem afplána langan fang­els­isdóm í Hvíta-Rússlandi fyrir smávægi­legt vímu­efna­brot. Þúsundir barna og ungmenna eru þeirra á meðal. Þessir einstak­lingar fá mun verri meðferð en aðrir lögbrjótar og þeir eru látnir vinna þrælk­un­ar­vinnu.

Emil fékk ekki að taka með sér asmalyf og hann kól við að ryðja snjó með berum höndum. Aðstæður Emils breyttust aðeins til hins betra þegar hann var fluttur í fang­elsi fyrir full­orðna en æsku hans og mögu­leikum er kastað fyrir róða, segir ennfremur á vef Amnesty.

Á hverju ári í kring­um alþjóðlega mann­rétt­inda­dag­inn 10. des­em­ber safn­ast millj­ón­ir bréfa, korta, SMS-ákalla og und­ir­skrifta í gegn­um alþjóðlegu mann­rétt­inda­sam­tök­in Am­nesty In­ternati­onal þar sem skorað er á stjórn­völd að gera um­bæt­ur í mann­rétt­inda­mál­um.

„Þessi ein­staki sam­stöðumátt­ur skil­ar raun­veru­leg­um breyt­ing­um í lífi þeirra sem minnst mega sín. Á hverju ári eru sam­viskufang­ar leyst­ir úr haldi, fang­ar hljóta mannúðlegri meðferð, þolend­ur pynd­inga sjá rétt­læt­inu full­nægt, fang­ar á dauðadeild eru náðaðir eða ómannúðlegri lög­gjöf breytt,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Am­nesty á Íslandi.

Hér er hægt að lesa um mál­in og skrifa und­ir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert