Heilu breiðurnar af typpafiski

Sjávarormurinn eða typpafiskurinn getur orðið allt að 25 sentímetrar á …
Sjávarormurinn eða typpafiskurinn getur orðið allt að 25 sentímetrar á lend. AFP

Íbúar í Kaliforníu ráku eflaust upp stór augu þegar þeir lögðu leið sína á Drake-ströndina nýverið. Heilu breiðurnar lágu þar af svokölluðum „typpafiski“ sem er í raun sjávarormur. Nafngiftina á þessum forvitnilega ormi má rekja til útlitsins eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. 

Kröftugur stormur sem reið yfir landið feykti þeim langt upp á ströndina sem liggur skammt frá San Francisco. Kjörlendi ormsins er strendur. Þeir grafa sig ofan í sandinn og næla sér í fæðu þannig. 

Typpalaga ormurinn getur náð allt að 25 sentímetra lengd. Hann finnst helst í Kaliforníu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert