Tveir handteknir í tengslum við Fishrot

Tveir voru handteknir í tengslum við rannsókn á Fishrot-spillingarmálið í Namibíu í Windhoek í gærkvöldi. Talsmaður lögreglunnar staðfestir þetta í samtali við The Namibian og þeir verða ákærðir fyrir að hindra gang réttvísinnar.

ACC, spillingarlögreglan í Namibíu, hefur verið í sambandi við „þá sem hlut eiga að máli“ í Samherjamálinu hér á landi. Þetta segir framkvæmdastjóri ACC í samtali við fréttastofu RÚV.

Framkvæmdastjórinn vill hvorki svara því hvort einhverjir Íslendingar séu grunaðir í málinu, né hvort einhverjir Íslendingar hafi verið yfirheyrðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert