Lögreglumaður ákærður fyrir morð

AFP

Lögreglumaður í Maryland-ríki hefur verið ákærður fyrir morð en hann skaut mann til bana á mánudagskvöldið. Maðurinn var í járnum inni í lögreglubíl þegar Michael Owen skaut hann sjö sinnum.

Owen, sem hefur verið í lögreglunni í tíu ár,  var ásamt öðrum lögreglumanni sendur í úthverfi Washington, Temple Hills, vegna þess að ökumaður, sem var grunaður um að vera undir áhrifum vímuefna, hafði ekið á nokkra bíla. 

Michael Owen hefur verið í lögreglunni í tíu ár.
Michael Owen hefur verið í lögreglunni í tíu ár. Prince George's County Police Department

Ökumaðurinn, William Green, 43 ára tveggja barna faðir, var handtekinn á áttunda tímanum, handjárnaður með hendur fyrir aftan bak og gert að setjast í framsæti lögreglubílsins á meðan beðið var eftir sérfræðingum til þess að taka úr honum blóðsýni. 

Í frétt BBC kemur fram að Owen hafi komið inn í bílinn og sest við hlið Green. Stuttu seinna var Green skotinn sjö sinnum af ástæðu sem ekki liggur fyrir, að sögn lögregluyfirvalda. Lögreglumennirnir veittu fyrstu hjálp á staðnum og Green var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem hann lést síðar um kvöldið. 

„Mín niðurstaða er sú að það sem gerðist í gærkvöldi er saknæmt,“ sagði lögreglustjórinn í Maryland, Hank Stawinski, við fréttamenn innan við sólarhring eftir atvikið. „Undir engum kringumstæðum er þetta ásættanlegt.“

Owen var ekki með myndavél á sér en samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum í ríkinu er unnið að því að koma slíkum búnaði á alla lögreglumenn. Hann er ákærður fyrir manndráp og fleiri brot. 

Stawinski segir að Owen hafi átt aðild að annarri skotárás árið 2011. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert